|
|
19.03.2008 15:50:11 / edda
Hæ hæ, jæja nú styttist óðum í litla krílið okkar  Ég er bæði orðin spennt og hrædd, um leið svo margar spurningar eru farnar að vakna, ætli það verði ekki allt í lagi, verðum við ekki örugglega góðir foreldrar,eigum við allt sem að krílið þarf, hvernig ætli fæðingin verði og fleiri og fleiri spurningar  Hugsa samt að það sé barasta eðilegt ferli sem að maður fer í gegnum Hugsa sér eftir 28 daga þá erum við skráð og vona ég innilega að maður gangi ekki langt fram yfir. Núna var ég að koma heim af spítalanum, er búin að liggja þar undarfarnar tvær nætur, blóðþrýstingurinn og bjúgurinn var orðin það mikið að Vilhjálmur lét leggja mig inn. þegar að ég var mæld í morgun þá var blóðþrýstingurinn búin að minnka, en ég má heldur eiginlega ekki gera neitt, þá hækkar hann strax aftur  sem betur fer er stutt eftir þannig að við lifum þetta af. Fæ samt að fara í stutta göngutúra og með kallinum á rúntin eða í búðina, má bara ekki vera of mikið á hverjum degi  Við erum komin með rúm, vagn, skiptiborð, skiptitösku, leikteppi og fullt af fötum  Nanna og Mamma fóru í bæin og slepptu sér alveg gjörsamlega  mamma keypti alveg ótrúlega fallegan kant til að setja inní rúmið, og helling af samfellum, sokkabuxum, snuð og húfu  Nannsa keypti leikteppi og skiptitösku og samfellur. Þetta er allt alveg rosalega fallegt. Mamma er svo viss um að ég gangi með strák að hún keypti 3 bláar samfellur  svo er bara að bíða og sjá hvort kynið barnið er. Núna langar mig að fara að gera barnaherbergið klárt, þótt að krílið sofi auðvitað inni hjá mömmu sinni og pabba þá er fínt að geta haft allt dótið inní einu herbergi Fáum mikið af dóti notað frá pabba enda á hann tvær litlar stelpur, og hefur hann geymt allt dótið frá þeim Jæja held að það sé ekkert meira í bili. fyrir utan það að ég má bara ekki heldur fara í skólan  er samt búin að vera að glósa smá og smá hérna heima.....hefði samt viljað geta farið í skólan var búin að gera ráð fyrir því en maður fær ekki allt sem maður vill bless bless allir
»
03.03.2008 09:37:32 / edda
Halló halló Jæja núna er maður kominn 34 vikur á leið og 6 vikur eftir  Líður bara svona lala, Bjúgurinn farinn að segja til sín sérstaklega á höndum og fótum  Annars hefur maður það barasta fínt.Fer í nudd á þriðjudaginn  og skoðun hjá Elínu á miðvikudaginn til að ath, hvort blóðþrýstingurinn hefur lækkað. Nú er ég hætt að vinna í Dalnum og er eiginlega ekki að fatta það, alltaf þegar að ég er að plana fram í tíman þá hugsa ég alltaf "nei bíddu við, ég er að fara að vinna þarna" svo bara nei Edda þú ert að fara að eiga barn hehe þú mátt ekki lengur vinna Þannig að nú verður einbeitingin að skólanum, sem að mætti vera meiri  vaknaði snemma í morgun til að fara að læra en er bara búin að vera að leika mér á netinu  Ætla reyndar að vera með vinahóp í dag og kannski næsta mánudag  get ekki slitið mig alveg frá unglingunum  enda halda þessar elskur manni ungum  Ég og Hagalín ætlum í sveitina á næstu helgi að hafa það næs, ætlum að horfa á spólur og læra og fara í göngu. Ætlum að eiga svona rómantíska helgi saman áður en að krílið kemur í heiminn Ég ætla að taka bumbumyndir í dag og setja á barnalands síðuna svona ef þið viljið fylgjast með því. Ætla að fara að lesa heimildir. Er að gera ritgerð um hvað hefur áhrif á geðtengsl?
»
25.02.2008 19:17:10 / edda
Halló eskurnar mínar. jæja þá er maður orðin ansi óléttur  Var í dag í Mæðraskoðun og Sónar. Er komin 33 vikur, og lítur allt bara vel út. Fylgjan er enn þá frekar lág sæt en hún er ekki fyrir þannig að ég verð örugglega að rembast eftir 7 vikur  Enda er það sem að maður vildi. Barninu heilsast vel, er 4% of stórt  lætur fara rosalega vel um sig í bumbinni minni: en Vilhjálmur sagði að það væri ekki neitt, gæti bara verið eftir mælingum  d. Alltaf jafn ótrúlegt að sjá litla krílið maður verður alveg agndofa.  Þessi mæðraskoðun var samt ekki sú allra besta, blóðþrýstingurinn búin að hækka frekar mikið, og Ellý sagði að ég væri komin með nokkur kg af bjúg á mig. Þannig að ég verð að hætta að vinna helst í dag, en ég ætla að klára vikuna  Finnst þetta alveg hræðilegt enda elska ég vinnuna mína, en einsog Ellý sagði þá er heilsan mín og barnsins fyrir öllu. Hún sagði að ég yrði að skera einhverstaðar niður og ekki vildi ég hætta í skólanum þannig að ég fórnaði vinnunni minni  En ég myndi fórna öllu fyrir krílið okkar  Bara svona til fræðslu þá kem ég ekki hringum niður hálfan puttan á mér  og lappirnar á mér eru frekar stórar. Núna er málið bara að hugsa vel um sig og hvíla sig eins vel og maður getur. Við skötuhjúin fengum bílstól frá mömmu og Eyfa í síðustu viku og er hann geggjað flottur, þau keyptu hann í Ólafíu og ólíver, svona Craco og erum við ekkert smá sátt við það. Núna erum við bara að byrja að finna út hvað við eigum til fyrir litla krílið og hvað við eigum ekki. Pabbi á svo mikið enda er minnsta systa ekki nema 6 ára. Og það sem að pabbi á ekki á mamma. Þannig að það helsta sem að okkur vantar eru smálhlutir  Jæja held að ég hafi ekki fleira að segja svo að ég muni a.m.k. þar til næst þá sjáumst við Hress
»
17.02.2008 21:45:34 / edda
Jæja Kæru Íslendingar, núna er ég bara kominn með nóg. Ég hugsa að allir viti hvað ég er að tala um en teka það fram að Veðrið er mér enn og aftur í huga  Hvað er bara með þetta veðurfar. Mér er bara ekki farið að standa á sama, ég spái því að Ísöldin verði komin áður en að ég dey, ég sem að hélt að ég myndi sleppa við hana. Veðrið er bara alltof brenglað til þess að ég haldi að það sé ekkert að ske. Annað hvort er snjór og brjálað veður, Brjáluð rigning og logn, endalaust af lægðum sem að lenda yfir okkur, þetta á bara ekki af manni að ganga. Verst finnst mér að þurfa að taka strætó í þessu helvíti  Alltaf er ég einsog hryllings mynd þegar að ég mæti í skólan  með hárið útí loft og málninginn niður á kinn. Og fatnaðurinn er ekkert til að hrópa húrra fyrir, þar sem að hann hengur einhvern megin utan á mér þar sem að ég get ekki rennt neinu af útifötunum mínum upp  Svo mætir maður stelpunum í skólanum í pinna hælum og kjól, og þá er best að læðast bara meðfram veggjum. Já ég held bara að þetta veðurfar sé ekki eðlilegt og ég mótmæli, ég vil fá sumar  svo að ég geti verið pæja hehe. Ekki fer ég á bíl á hverjum degi miða við hvað bensínverðið er ógeðslega hátt, já herrar og frúr 141 kr líterinn, þetta á ekki af manni að ganga, og ekki getur maður hjólað, í 20 m/s og grenjandi rigningu. Já þetta land er bara ekki að gera sig núna. Í staðin verð ég að húka í strætó með bumbuna mína út í loftið, gegnum blaut og get ekki einu sinni rent upp úlpunni, yrði ekki hissa ef að eitthvað fólk myndi henda í mig pening af vorkunn hehe Hér með hvet ég ríkisstjórn Íslands sem að "by the way" er með einkabílstjóra og ég efast um að þurfi að borga bensín sjálft til þess að lækka VSK af bensínverði, og ef að Olíufélögin hækka verðið enn frekar(einsog matvörubúðir og veitingarstaðir gerðu)    í kjölfarið, þá á að setja lög á þau um hámarks hækkun frá innkaupsverði olíunnar. Finnst við íslendingar ekki nógu dugleg við að mótmæla þessu, við látum bara vaða yfir okkur, já núna er maður bara kominn með nóg. Fyrir utan alltof hátt bensínverð og vont veður þá er allt fínt að frétta er að byrja í 32. viku fer víst ekki í mæðraskoðun fyrr en í 33 viku og þá í sónar líka hlakka ekkert smá mikið til.
»
08.02.2008 16:58:33 / edda
Halló halló, jæja það er nú ekki mikið að frétta af mér þessa daganna. Er bara að taka það rólega, fer í skólan og vinnu og er svo bara heima að læra eða horfa á sjónvarpið enda er ekki búið að vera mikið göngu veður, fyrir óléttar konur, eða bara fólk almennt ætla samt að hætta mér út í dag, en það er bara því að Hagalín ætlar að fara með mér, þori ekki að fara ein í göngu þegar að það er svona sleipt og svona mikill vindur Litla krílið hefur það gott, vorum í skoðun í gær og gekk það bara vel, reyndar er blóðið hjá mér að lækka en það er nú algengt hjá konum gengnar þetta langt á leið. Þarf að taka járn og svona til þess að ég haldi mér nú vakandi hehe. Núna er kúlan farinn að vera svoldið fyrir mér, er að verða það stór, t.d. er orið erfitt að klæða mig í skó og sokka og svona sem að var ekkert mál áður. Litla krílið er duglegt að gera æfingarnar sínar, og er það alveg æðisleg tilfinning að alltaf þegar ég vakna á morgnana, þá sparkar barnið og lætur vita af sér. Hef nú ekki mikið farið í skólan í þessari viku þar sem að veðrið er slæmt og það er búið að vera frí í skyn og hugfræði B. Svo var ég að setja inn myndir og þær eru bara dottnar út, þannig ef að þið vitið afhverju það er endilega látið mig vita, svo ég geti lagað það Þar til næst, þá læt ég ykkur vita hvernig 32 vikna sónarinn gekk og svona bless bless
»
26.01.2008 20:06:00 / edda
Halló, halló. Allir saman, alltaf er jafn langt á milli færsla hjá mér. Er ekki dugleg við þetta. Það sem er að frétta núna er að ég er komin 28vikur og 5 daga samkvæmt Ellý í mæðra eftirlitinu. Var í mæðraskoðun á fimmtudagin síðasta og leit allt bara vel út. Er reyndar að drepast í lífbeininu, það er alveg hræðilegt að snú sér á nóttinni, lyfta upp löpp. Þarf að passa upp á mig, og ætla ég að prófa að fara í nudd og nálastungur og vona að það lagi sársaukan eitthvað. Svo förum við í sónar aftur í 32. viku til þess að athuga hvort að fylgjan sé búin að færa sig upp. Hlakkar bara til. Annars fyrir utan það þá líður mér bara rosalega vel, blóð þrýstingur í lagi, barnið í lagi, meðan að litla krílið okka er í lagi þá er ég sátt Hagalín minn er alveg yndislegur, hann hugsar alveg rosalega vel um mig, gæti ekki án hans verið Hjálpar mér með allt sem að ég bið hann um að gera og bara ekkert vesen.  Ég verð að deila einu með ykkur, það er alveg ótrúlegt hvað fólk heldur að sé í lagi að segja við mann þegar að maður er ófrískur. Jú auðvitað veit ég að maður stækkar þegar að maður er ófrískur og fólk stækkar mis mikið. ég er að lenda í því að fólk er ligguð við að segja voðalega ertu orðin feit Ein spurði mig í dag hvað ég væri búin að þyngjast mikið og það var ekki vinkona mín var ekkert smá hissa, er það bara eðilegt að spurja svona spurninga. Mér finnst a.m.k. að fólk mætti passa sig aðeins þegar að það er tala við mann. Veit ekkert leiðinlegra þegar að fólk segir rosalega ertu orðin stór. finnst þá skemmtilegra ef að það er bara sagt mín bara orðin myndarleg. eða eitthvað þess háttar. Vá ég varð bara að koma þessu frá mér. SKólin gengur bara vel, held að þessi önn eigi eftir að vera skemmtileg, tók bara 10 einingar núna, þroska sálfræðina og skynjunar sálfræði, lýst rosa vel á þessa áfanga, sleppti s.s. einum áfanga. Stína segir mig heppna þar sem sá áfangi er víst hræðinlegur. Setti inn eina bumbumynd fyrsta bumbu myndinn á enga fyrr en í 25-26 viku. Ekki nógu dugleg við þetta. reyni að verða duglegri
»
22.12.2007 12:17:25 / edda
Jibby jibby ég er búin í prófum... er svo ánægð með það. Var í samtals að læra í 1.mánuð án þess að taka mér frí í einn heilan dag enda var maður á barmi taugaáfalls þegar að síðasti dagurinn rann upp. En núna ætla ég ekki að hugsa um skólan í svona 1.viku. Er búin að fá inn tvær einkunnir af 4 og ég náði þeim Bjóst meira segja við að falla í einu, próffræðinni en þetta tókst. Er samt að hugsa um að taka það aftur svona til þess að fá aðeins hærri einkunn. Þar sem að ég lagði vittlausa áheyrslu á efnið þegar ég var að læra en við sjáum til. Þannnig að núna er bara frí til 14 janúar og svo skólin aftur og þá er maður bara búin með 2.árið í sálfræði. En svo ætla ég að taka mér frí í eina önn til þess að hugsa um litla krílið finnst of snemmt að fara í skólan þegara að það er bara 5 mánaða. Þar sem að skólinn minn er í RVK. En vildi bara monta mig að vera búin í prófum og segi bara gleðileg jól allir og hafið það æðislega
»
10.12.2007 23:13:25 / edda
»
26.11.2007 18:40:41 / edda
Jæja nú eru jólin alveg að detta inn og haldiði ekki bara að ég sé búin að baka 5 smákökutegundir meira segja tvöfalda uppskrift að lakkrískökum, einnig bakaði ég maramarköku og súkklaðibitaköku og svo gerði ég ís ég er mjög stolt af afreki mínu. En ekki nóg með það heldur setti ég líka seríurnar upp og þetta gerði ég allt alein, meðan kallin var í jeppaferð. Enda var maður nett búin á því á laugardagskvöldið kl 00:00 þegar að öllu var lokið. Best að rumpa þessu bara af á einum degi jólastress hvað hehe. En þetta varð bara að gerasta á laugardaginn allt saman,þar sem að ég þurfti að læra allan sunnudaginn í tölfræði verkefni, vona innilega að þetta verði síðasta tölfræði verkefnið mitt. Í dag var svo mæðraskoðun og sónar og allt gekk bara mjög vel. Litla krílið var nú barasta búið að hnipra sig saman þannig að maður sá ekki barnið í heild sinni,bara svona brot og brot en það var alveg æðisleg tilfinning þegar læknirinn sagði að allt liti bara mjög vel út líður svo vel eftir að hafa fengið staðfestingu að allt sé í lagi Við vorum samt heldur lengi í sónar þar sem að vilhljálmur þurfti að beita kúnstarinnar reglum til að geta mælt höfuðmálið, til að sjá nákvæman dagsetningu, já maður er skráður 16 apríl, og erum við skötuhjúin sátt með þann dag Þarf reyndar að fara aftur í sónar á 32. viku þar sem að fylgjan er heldur neðanlega. Við erum amk alveg voðalega spennt, og finnst mér óléttan vera svo raunveruleg eftir að ég fór að finna hreyfingar enda komin 20. vikur maður er barasta hálfnaður8. Nú er bara prófalestur byrjaður, samt svo fyndið að það er alltaf eitthvað annað sem að maður verður að gera þegar maður á að vera að læra, t.d.skria blogg færslu taka til gat bara ekki sest fyrr en ég var búin að taka til fara út með heru heimsækja ömmu mína elda skutla hagalín og svona heldur þetta áfram þar til að maður er búin að gera svo mikið yfir daginn að maður er bara orðin þreyttur . En ég ætla að byrja að læra eftir mat, ætlaði samt að byrja eftir mæðraskoðun en það plan breyttist þegar ég þurfti að skutla kallinn í bæinn en á morgun lítur þetta betur út þá er ég búin að öllu hér heima nema að kíkja út með Heruna mína en það er bara gott að fá smá breik frá lærdómnum og kíkja á hundasvæðið Nóg í bili kveðja Edda í jólaskapi
»
08.11.2007 18:46:41 / edda
»
30.10.2007 11:46:37 / edda
»
04.10.2007 14:44:56 / edda
HALL'O ALLIR Jæja það er nokkuð langt síðan að ég skrifaði síðast. ekki alveg að nenna þessu Enn ég fór til BENE og var það æðislegt hreynt yndislegt var samt oriðin svoldið þreytt á kvöldin því að það voru alltaf sömu skemmtiatriðin á hótelinu, endaði með að við fórum að fara að setjast á eldrimanna barinn á hótelinu og skemmta okkur þar allt til að losna við fólkið sem að við vorum ju búin að sjá 9 sinnum áður hehe annars skemmtum við okkur alveg rosalega vel og kom ég endurnærð heim. Hagalín vildi meina að ég væri nú ekkert brún en þegar að ég sýndi honum hvítu tútturnar mínar þá snérist honum hugur 8 Erum búin að vera með hund í 2 mánuði í pössun sem að var alveg yndislegur og skemmtum við okkur vel með honum Sesari en það var náð í hann í gær og hefur Hera mín legið í þunglyndiskasti síðan Er búin að reyna að vera að dreka hana smá gefa henni bein og svona, en ekkert virðist laga þetta litla grey Reyndi meira að segja að strjúka að heiman í gær,þegar að ég kom heim þá var barasta opið út, en henni hefur víst snúist hugur því að hún lá bara í sófanum Skólinn er byrjaður á fullu og það er sko ekkert minna að gera á 2.ári í sálfræðinni en því fyrsta einhver reyndi að ljúga því að mér reyndar er maður alveg komin í gegnum sýjuna þannig núna verður maður bara að standa sig AÐALFR'ETTIRNAR Það er fjölgun á Krókartúninu og hlakkar okkur alveg rosalega mikið til, ég er genginn 13 vikur og hefur allt gengið einsog í sögu s..s enginn morgunógleði eða neitt. Samt búin að vera mjög þreytt og önug (hagalín forðar sér bara) en það er víst eðlilegt. Þannig að með tímanum farið þið að sjá kúlu á stelpunni. Við erum búin að fara í mæðraskoðun og leit þetta allt saman vel út Minns hættur að reykja og er mjög stolt af því var bara ekkert vandamál. Við ætlum að reyna að kíkja á ball á laugardaginn, langar alveg óskaflega mikið að kíkja út en að sjálfsögðu verður stelpan edrú þótt eflaust eigi kallin eftir að vera á sneplunum 
»
03.07.2007 22:56:42 / edda
Komið sæl og blessuð, jæja þá erum við komin inn í nýju íbúðina
okkar og allt er að verða klárt bara eftir að setja barborðið sem
að við keyptum og svona dútlerí á sína staði. Mér líður alveg
frábærlega Enda eru írskir dagar rétt að smella í garð
og þá verður djammað af sér rassgatið hehehe ætlum að halda
innflutnings og afmælisparty hér á krókatúninu á laugardagskveldið
enginn afmælisboðskort verða þó send hehe. Vinnann mín er að gera
sig þessa dagana maður er bara að tana og hreyfa sig ekki amalegt
að fá borgað fyrir það
Svo er ég að fara til útlanda(BENIDORM) með minni elskulegu
fjölskyldu þann 22. ágúst hlakkar ekkert smá til Kallinn fær í
staðinn að fara í stráka ferð til Búlgaríu þannig að þetta verður
stuð sumar.
Á reyndar smá bágt núna Hagalín er búin að vera á næturvöktum og
því þarf ég að sofa ein í nýja pleysinu þeir sem að þekkja
mig vita hvað ég get verið voðalega ýmindunar veik er búin að klára
1 og hálfa bók á 3 dögum shit ef að ég væri svona dugleg að lesa
skólabækurnar
Með skólan þá náði ég öllu þarf samt að taka upptöku próf til
að hækka meðaleinkunnina,,,,, bömmer það en eftir prófið
fer ég beint út á flugvöll og til Bene að tana
Jæja hef það ekki meira í bili man ekki eftir fleiru einsog er
Jú BJÖSSI MINN Á AFMÆLI Í DAG INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ, VIÐ
GÁFUM HONUM GÓÐAN PAKKA 
SÉ VONANDI SEM FLESTA Á BALLINU Á LAUGARDAGINN, HELD AÐ ÞAÐ
VERÐI BARA TEKIÐ FLIPP Á ÞETTA
»
03.07.2007 22:56:25 / edda
Komið sæl og blessuð, jæja þá erum við komin inn í nýju íbúðina
okkar og allt er að verða klárt bara eftir að setja barborðið sem
að við keyptum og svona dútlerí á sína staði. Mér líður alveg
frábærlega Enda eru írskir dagar rétt að smella í garð
og þá verður djammað af sér rassgatið hehehe ætlum að halda
innflutnings og afmælisparty hér á krókatúninu á laugardagskveldið
enginn afmælisboðskort verða þó send hehe. Vinnann mín er að gera
sig þessa dagana maður er bara að tana og hreyfa sig ekki amalegt
að fá borgað fyrir það
Svo er ég að fara til útlanda(BENIDORM) með minni elskulegu
fjölskyldu þann 22. ágúst hlakkar ekkert smá til Kallinn fær í
staðinn að fara í stráka ferð til Búlgaríu þannig að þetta verður
stuð sumar.
Á reyndar smá bágt núna Hagalín er búin að vera á næturvöktum og
því þarf ég að sofa ein í nýja pleysinu þeir sem að þekkja
mig vita hvað ég get verið voðalega ýmindunar veik er búin að klára
1 og hálfa bók á 3 dögum shit ef að ég væri svona dugleg að lesa
skólabækurnar
Með skólan þá náði ég öllu þarf samt að taka upptöku próf til
að hækka meðaleinkunnina,,,,, bömmer það en eftir prófið
fer ég beint út á flugvöll og til Bene að tana
Jæja hef það ekki meira í bili man ekki eftir fleiru einsog er
Jú BJÖSSI MINN Á AFMÆLI Í DAG INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ, VIÐ
GÁFUM HONUM GÓÐAN PAKKA 
SÉ VONANDI SEM FLESTA Á BALLINU Á LAUGARDAGINN, HELD AÐ ÞAÐ
VERÐI BARA TEKIÐ FLIPP Á ÞETTA
»
25.06.2007 22:42:13 / edda
Aldrei
segja bless - ef þig langar enn að reyna
Aldrei gefast upp ef þér finnst þú geta haldið
áfram.
Aldrei
segja að þú elskir manneskjuna ekki ennþá,
ef þú getur ekki sleppt henni.
Kannski er bestu vinurinn sá sem
þú getur rólað þér með á veröndinni án þess að segja orð og síðan
gengið í burtu og liðið eins og þú hafir átt eitt besta samtal ævi
þinnar.
Mundu að vera alltaf glaðlegur og
að eiga bros handa öllum sem þú mætir
að
gefa þér svo míkinn tíma til að þroska
þig,
að
þú hafir ekki tíma til að gagnrýna aðra
að
vera of stór fyrir áhyggjur,
of
öruggur fyrir reiði,
of
sterkur fyrir ótta
og of hamingjusamur til að leyfa
vandamálunum að festa rætur 
Brosið
kostar ekkert, enn
ávinnur míkið.
Brosið
auðgar þann sem
móttekur.
Sá sem
brosir tapar
engu.
Brosið
varir
augnablik
enn
minningin um það geymist oft ævilangt.
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Heimsóknir
Í dag: 24 Alls: 35482
Talning
Fyrir 664 dögum
Litla krílið okkar á að koma í heiminn
|